Dr. Óli Páll Geirsson
CDSO
Dr. Óli Páll snýr aftur til Snjallgagna
Dr. Óli Páll Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri gagnavísindateymis Snjallgagna
Dr. Óli Páll Geirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri gagnavísindateymis Snjallgagna, sem er tíu manna hugbúnaðarfyrirtæki í Reykjavík. Óli Páll hefur samhliða snúið til baka í eigendateymi Snjallgagna, en hann var einn af stofnendum félagsins árið 2020. Snjallgögn þróa hugbúnaðarlausnir sem gera fyrirtækjum mögulegt að hagnýta gervigreind og gagnavísindi til að efla sölu og þjónustu ásamt því að bæta daglegan rekstur. Lykilvara fyrirtækisins er gervigreindarkerfið Context Suite, en fyrirtækið hefur allt frá stofnun unnið að margvíslegum gervigreindarlausnum.
Himinlifandi stofnandi
„Við erum í hreinskilni sagt alveg himinlifandi að fá Óla Pál aftur til liðs við okkur. Óli Páll er ekki bara þrautreyndur leiðtogi gagnateyma og með tilkomumikinn starfsferil, heldur er hann einnig stefnumótandi sérfræðingur í gagnavísindum. Óli Páll smíðar háþróuð tölfræðilíkön og hagnýtir gervigreind eins og að drekka vatn og er því sannarlega dýrmæt viðbót við hópinn okkar. Á tyllidögum í starfsemi Snjallgagna hef ég ekki farið leynt með þá stefnu að stækka okkar einstaka teymi afreksfólks á sviði gervigreindar. Endurkoma Óla Páls er til marks um þessi markmið fyrirtækisins og er einnig upphafið á næsta áfanga Snjallgagna. Við ætlum okkur nefnilega stóra hluti með gervigreindarkerfið Context Suite hér heima og erlendis,“ segir Stefán Baxter, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Snjallgagna.
Auðveld ákvörðun
„Ég stóðst ekki freistinguna að ganga aftur til liðs við Snjallgögn á þessum tímapunkti, enda þekki ég bæði starfsemina og lausnir fyrirtækisins vel. Ég er svo lánsamur að hafa fengið að leiða uppbyggingu á nokkrum gagnavísindateymum í atvinnulífinu undanfarin ár og stuðlaði að gagnadrifinni menningu á hverjum stað. Markmiðið hefur alltaf verið það sama: að styrkja skipulag og getu vinnustaða til ákvörðunartöku með nýstárlegum greiningartækjum og lausnum. Þessi reynsla kemur vissulega að góðum notum hjá Snjallgögnum,“ segir Óli Páll.
Gagnadrifinn starfsferill
Óli Páll leiddi síðast gagnavísindateymi Lucinity, sem hafði það hlutverk að þróa gervigreindarlíkön og aðferðir sem auðvelda fjármálafyrirtækjum til að taka gagnadrifnar og árangursríkar ákvarðanir í baráttunni gegn peningaþvætti. Hann starfaði áður sem gagnastjóri Reykjavíkurborgar á þjónustu- og nýsköpunarsviði. Þar byggði hann upp og leiddi skrifstofu gagnaþjónustu til að styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku innan borgarinnar og skapa virði úr gögnum hennar. Hann sat einnig í framkvæmdastjórn sviðsins og í aðgerðastjórn stafrænna umbreytinga hjá borginni. Þar áður var Óli Páll sérfræðingur í gagnavísindum hjá Landsbankanum. Hann er með doktorsgráðu í tölfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. gráðu í stærðfræði frá sama skóla. Samhliða fyrri störfum hefur Óli Páll starfað sem aðjúnkt í tölfræði við Háskóla Íslands.
Um Snjallgögn
Viðskiptavinir Snjallgagna starfa á ólíkum sviðum atvinnulífsins og eru meðal annars Arctic Adventures, Bónus, Íslandshótel, Nova, Rarik og Sýn. Verkefnin sem Snjallgögn vinnur að með þessum viðskiptavinum eru jafnframt mismunandi innbyrðis, en hafa þó öll hagnýtingu gervigreindar sem rauðan þráð.
Lykilvara Snjallgagna er alhliða gervigreindarkerfið Context Suite sem inniheldur meðal annars þjónustugreind, eftirspurnargreind og snjallmennið Mími. Context Suite er með öðrum orðum safn hugbúnaðarlausna á sviði gervigreindar, sem einfalda fyrirtækjum og stofnunum að nýta gervigreind til að bæta sölu, þjónustu og rekstur.
Þjónustugreind Snjallgagna gerir kleift að efla þjónustuver vinnustaða með gervigreind, greiningu og sjálfvirkri svörun, sem er auðvelt að bæta við núverandi þjónustukerfi.
Eftirspurnargreind Snjallgagna er ætlað að auðga núverandi spágögn vinnustaða með ytri þáttum sem hafa stór áhrif á eftirspurn eftir vörum og þjónustu. Tilgangurinn er að auka sölu með því að grípa dulin sölutækifæri, bæta birgðastýringu og treysta þannig rekstur og draga úr sóun.
Snjallmennið Mímir getur átt hnökralaus samskipti við starfsfólk og viðskiptavini. Mímir talar fyrir bæði skjöl og kerfi og er rafræn aðstoðarmanneskja ólíkt biðstofuspjallmennum og spjallþjörkum (chat-bots).