Máltækniforritari (NLP)
Reykjavík / Fjarvinna
Fullt starf
Snjallgögn óska eftir að ráða úrræðagóðan NLP (e. Natural Language Processing) forritara til að hagnýta og sérsníða gervigreindarlíkön í viðskiptalegu samhengi. Í þessu hlutverki samþættir viðkomandi öflugar tæknilausnir til að sjálfvirknivæða úrlausn flókinna áskoranna.
Starfssvið
Hönnun og innleiðing NLP kerfa með nýjustu tækni, þar á meðal öflugar framleiðslulínur (e. production pipelines) og innleiðingarumhverfi í samvinnu við teymi forritara og gagnasérfræðinga.
Þróa frumgerðir lausna og þroska yfir í fullbúnar þjónustur, með ábyrgð á bæði virkni og aðlögun forritaskila til að bæta gervigreindarlausnir.
Símat og bestun á virkni líkana og kerfa til að halda þeim í fremstu röð í hagnýtingu gervigreindar, máltækni og vélnáms.
Hæfnikröfur
Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tölvuverkfræði eða öðrum verk og raunvísindagreinum.
Hugmyndaauðgi við lausn vandamála, þekking á Python, og reynsla af lykilkerfum í heimi gagnavísinda/NLP eins og Pandas, Scikit-learn, og SpaCy. Brennandi áhugi á nýjustu þróun í gervigreind og málvísindum.
Hagnýt reynsla af hugbúnaðarþróun, þar með talin vinna með SQL og Git, ásamt skilningi á máltækni og tækniumhverfi vélnáms.
Þekking á skýjaþjónustum eins og AWS og Azure, og helst færni í uppsetningu gagnaíláta í umhverfi á borð við Docker eða Kubernetes.
Launakjör
Samkeppnishæf laun sem taka mið af reynslu
Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar.
Sveigjanlegur vinnutími.
Skapandi, jafnvel nýskapandi, vinnuumhverfi.
Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að senda inn ferilskrá ásamt ítarlegri kynningu á hæfni sinni og reynslu sem þeir telja nýtast í starfi. Dæmi um fyrri verkefni eða framlag til tengdra verkefna eru einnig velkomin.
Sækja Um